Færslur: 2012 Janúar
30.01.2012 19:31
Félagsfundur

Ívar Atlason var gestur fundarins, hann var með mjög áhugavert efni um varmadælur, þá er meiningin að nýta varman úr sjónum. Hann fræddi okkur um rafstrengina tvo sem eru milli lands og Eyja. Eldri strengurinn er orðinn 50 ára gamall og kominn 10 ár fram yfir lífaldur og yngri strengurinn er orðinn 35 ára og mikið skemmdur. 2013 ætlaði Landsnet að leggja nýjan streng en það er búið að blása það út af borðinu. Þannig að við gætum verið í vondum málum ef annar hvor strengurinn gefur sig.
Ívar sagði meðal annars frá hraunhitaveitunni sem var einstök í heiminum á sínum tíma.
15.01.2012 21:34
Myndband
Nýtt á síðunni. Myndband af tónleikunum. Klikkið á Myndbönd og sjáið Egil Ólafsson syngja Ship ohoj.
15.01.2012 19:38
Oddgeirstónleikar

Frábær flutningur hjá þeim Margréti Eir og Eyþóri Inga þegar þau fluttu lagið Þar sem fyrrum ljóð eftir Ása í Bæ. Annars voru tónleikarnir alveg frábærir, við eigum alveg stórkostlega listamenn.
Það eru fleiri myndir í myndaalbúmi
15.01.2012 19:07
Jólahús

Hrauntún 16 er jólahúsið í ár

Hjónin Arnar Ingólfsson og Margrét Steinunn Jónsdóttir tóku við viðurkenningu frá Sigurjóni Ingólfssyni svæðisstjóra HS Orku og Jóhannesi Grettissyni formanni.
- 1
Arnardrangur
Um:
Stjórn: Formaður - Jóhannes Grettisson. Ritari - Friðrik Stefánsson. Gjaldkeri - Sigmar Georgsson.Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 43369
Samtals gestir: 13885
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 09:30:57

