Arnardrangur

Um:

Stjórn: Formaður - Jóhannes Grettisson. Ritari - Friðrik Stefánsson. Gjaldkeri - Sigmar Georgsson.

Umdæmi 109 A

Velkomin á heimasíðu Lionsumdæmis 109 A

Byggjum upp

Mitt kjörorð er "Byggjum upp" og vísa ég þar til siðareglunnar: "Vertu gætinn í gagnrýni og örlátur á viðurkenningu. Byggðu upp, en rífðu ekki niður" og vonast ég til þess að þetta geti orðið okkur að leiðarljósi. Ég legg höfuðáherslu á að byggja upp góðan starfsanda svo okkur líði vel og sýnum hvert öðru virðingu.
Mikilvægt er að hrósa, þakka og viðurkenna gott starf Lionsfélaga, það eru einu laun sjálfboðaliðans og við skulum "borga vel". Það skilar sér í afköstum í klúbbnum, góðum anda, félögunum líður vel, hætta ekki og klúbburinn verður áhugaverður kostur og þá fjölgar félögum í klúbbnum.
Við þurfum að styrkja eða byggja upp félagana, klúbbana, svæðin, umdæmin og ímynd Lions. Við getum styrkt félagana m.a. með fræðslu. Við styrkjum klúbba og svæði með samstarfi, aukinni kynningu og með því að styrkja ímynd Lions. Við þurfum líka að styrkja Lionshreyfinguna á Íslandi og stofna nýja klúbba, því margar hendur vinna létt verk.
Ég hef gert kyndilinn að tákni mínu og umdæmisins þetta starfsár. Við erum öll að taka að okkur krefjandi verkefni, við verðum öll í forystu fyrir okkar málaflokk og berum kyndilinn með stolti og lýsum leiðina. Kyndill er notaður sem tákn fyrir sigurvilja. Kyndilinn stendur m.a. fyrir: Forystu og kraft. Brennandi þrá eftir að ná árangri og hafa jákvæð áhrif.

Guðrún Björt Yngvadóttir, umdæmisstjóri 109A, starfsárið 2008-2009

Hér er slóðin á heimasíðu umdæmisins

http//www.lions.is/aumd/


Arnardrangur

Um:

Stjórn: Formaður - Jóhannes Grettisson. Ritari - Friðrik Stefánsson. Gjaldkeri - Sigmar Georgsson.
Flettingar í dag: 6
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 19
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 43369
Samtals gestir: 13885
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 09:52:46